Þegar jörðin myndaðist var hún bráðin í gegn. Þyngdarkrafturinn varð til þess að eðlisþyngra efni sökk í átt að miðju jarðar og ýtti eðlisléttari efnum upp. Skref fyrir skref var jörðin lagskipt þar sem innri lögin urðu eðlisþyngri en þau sem voru lengra að utan.