Jarðskorpa
Jarðskorpan er þunnt lag af bergi og er 7–70km þykk. Hún er hörð, stökk og brotgjörn og skiptist í úthafsskorpu og meginlandsskorpu. Úthafsskorpan er mjög þunn, hún er aðeins 7-11 km þykk og er undir úthöfum. Meginlandsskorpan er þykkust undir fellingafjöllum þar sem henni hefur verið þrýst saman þar er hún um 35-40 km þykk.